29.10.2009 | 09:32
Draumar, draumar, draumar...
Alltaf dreymir mig jafn mikið. Í nótt dreymdi mig draum sem var mjög svipaður draum sem að mig dreymdi 16. október. Ætla að skrifa þá báða hér inn.
Fyrri draumurinn var þannig að ég eignaðist tvíbura með tveggja daga millibili. Mundi dagsetningarnar mjög vel þegar ég vaknaði og skrifaði þær hjá mér. Það voru 31. október og 2. nóvember. Og það var stelpa og strákur. Ég stakk svo af af spítalanum afþví að ég gat ekki gefið þeim brjóst og eithvað. Man drauminn óljóst enda orðið frekar langt síðan mig dreymdi hann.
Í nótt dreymdi mig svo aftur að ég væri að eignast tvíbura. Átti þá í venjulegu baðkari. Ein, en mamma var greinilega frammi á gangi/eldhúsi eða eithvað, því að ég kallaði á hana þegar stelpan kom. Fyrst kom s.s strákur og svo kom stelpa. Ég átti tvö börn fyrir, sem áttu öruglega að vera tvíburar líka, fannst það svona á tilfinninguni í kring um þá. Tveir stráka allavega. Og ég var með svakalegt samviskubit yfir nýju börnunum afþví að mér fannst ég ætti bara að elska hina strákana. Og í báðum draumunum vissi ég ekki að ég væri ófrísk, var bara að eignast börnin. Í nótt sagði ég t.d Lalla ekkert frá því fyrr en daginn eftir. Þá vorum við fyrir utan gamla skátaheimilið (sem brann) og Stefanía Inga og eithverjir voru að koma að skoða barnið... En urðu svo svakalega hissa þegar þau voru tvö. Ég sýndi þeim aldrei börnin, heldur lét fólk fara eitt að skoða þau, þar sem að ég skammaðist mín svo fyrir að vera orðin fjögurra barna móðir.
Spurning hvort að það sé eithvað sérstakt að fara að koma fyrir mig á næstu dögum.
Sumir segja að tvíburadraumar merki efriðleika og þá tvöfalda erfiðleika. En aðrir segja að það boði mikla gæfu og góða framtíð. Draumaráðningabækur eru líka jafn misjafnar og þær eru margar. Þannig að ég bíð bara spennt eftir að það komi eithvað skemtilegt eða óskemtilegt í ljós á næstu dögum :)
Kv Kittý - "tvíburamamma"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.9.2009 | 13:27
Í blogg stuði...
... þessa dagana :) Hef ekki bloggað í marga, marga mánuði og svo tvö blogg í sömu vikuni. Hvað er eiginlega að gerast :) hehe!!
En það sem að mér er hugleikið þessa dagana er stúlkan sem að er að sækja um forræði bræðra sinna, þvílíkur dugnaður í henni og kraftur. Og á í þokkabót von á barni sjálf. En það sem að ég er að velta fyrir mér með þetta mál er hvort að drengirnir hafi verið skírðir í kirkju? Ég hef kanski alltaf miskilið skírnarvotta, eða hvað? Ég hélt að þeir væru guðforeldrar drengsins? Ég stóð allavega í þeirri trú þegar ég skírði son minn, teingdarmamma og mamma mín voru skírnarvottar og þar af leiðandi vildi ég að þær myndu taka við forræða sonar míns ef að ég og Lárus föllum frá?
En ég heyrði í útvarpinu í gær að ef að báðir foreldrarnir falla frá þá fer forræðið sjálfkrafa til barnaverndarnefndar. Er þetta rétt? Hefur guðforeldrið ekkert að segja? Mér skilst á því sem að ég les á netinu að þá hafi guðforeldrið engan lagalegan rétt, þannig að ég gæti svo sem allveg slept þessu. Eða hvað?
En aftur að máli stúlkunar sem að er að sækja um forræði bræðra sinna, ég hef ekki trú á öðru en að íslenska kerfið láti hana hafa forræði yfir börnunum, ef ekki þá er landið fyrst farið til helvítis.
Með bestu kveðju
Kittý - í djúpum hugleiðingum !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.9.2009 | 21:11
Tannhreinsun hjá hundum.
Sælt veri fólkið.
Já það er langt síðan ég bloggaði og ætti í raun og veru að fá mér nýtt blogg þar sem að fólk kíkir ekki einu sinni hérna inn. En.. ég verð nú bara samt að skrifa um þetta. Þannig er mál með vexti að við þurfum að fara með tíkina okkar í tannhreinsun og þar sem að ég hef sem betur fer ekki þurft að gera þetta áður þá hringdi ég á nokkra dýraspítala til að spyrjast fyrir um þetta. Vinkona mín hafði nefninlega bent mér á að þetta væri mjög misjafnt eftir dýraspítulum en ég ætlaði ekki að trúa því hvað verðmunurinn er mikill.
Ég hrindi á fjóra staði. Dýraspítalana í Grafarholti, Víðidal, Selfossi og á Hellu.
Í Grafarholti hafði hún allveg á hreinu hvað þetta kostaði og gat svarað mér um leið. 15000 kr takk fyrir takk. Og þar sem að það er líka komin tími á bólusetningu og ormahreinsun þá spurði ég líka um það. 8000 kr. Samtals 23000 kr!!!
Næst var það Víðidalur, það símtal tók næstum því 10 mínútur því stelpan sem að svaraði vissi næstum því ekkert og þurfti að spyrja um allt. Og tannhreinsunin kostar þar 8 - 11.000 kr. Og Bólusetning + ormahreinsun 9000... 17 - 20.000 kr... Ok.. ódýrara en í Grafarholti. En Grafarholt hljómaði samt meira traustvekjandi.
Svo var það Selfoss, spítalinn sem að við höfum skipt mest við. 18.000 kr kostar tannhreinsunin og 9600 bólusetningin... VÁ!!!! 276000 SÆLL!!! Já nei takk!!!
Á Hellu kostar tannhreinsunin svo bara 8000 kr. En stelpan sem að svaraði mér þar segir mér svo að það sé alltaf möguleiki á því að hún þurfi sýklalyf eftir aðgerðina og þá geti kostnaðurinn mögulega orðið 10.000 kr. Svo spyr ég um bólusetninguna og þá er hún sú fyrsta sem að segir mér að ef að þetta er gert í sömu ferðinni þá borga ég bara eitt stofugjald og þess vegna kostar bólusetningin hjá þeim bara 3500 kr. s.s 13.500 kr með öllu.
Ég skil með engu móti afhverju verðið er svona misjafnt og hvað þá afhverju það segir mér enginn að það væri ódýrara ef að ég væri að bólusetja tíkina í sömu ferð??
Oh.. já ég er svolítið pirruð yfir þessu en AUÐVITAÐ er ég búin að panta tíma fyrir tíkina á Hellu, þar sem að ég get allveg keyrt þangað eins og til Reykjavíkur.
Já.. er búin að pústa.. :) bæti svo kanski við þegar ég er búin að fara með tíkina :)
bestu kveðjur
Kittý - hundaeigandi :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.3.2009 | 16:14
Sjónmælingar...
Þó svo að ég sé búin að vera með gleraugu í að verða 10 ár þá er ég ekki sú skarpasta í þessum heimi. Eyvindur Sveinn var að brjóta gleraugu númer 2 frá mér þannig að ég þarf að kaupa mér ný. Fór í Sjónarhól í Hafnarfirði með brotnu gleraugun til að láta gera við þau og pantaði mér umgjörð, en ég á ekki reseft sem að segir hvernig gler ég þarf og fæ ekki tíma hjá augnlækni fyrr en 25.mars og það eru ekki gerðar sjónmælingar í Sjónarhól. En afgreiðslustúlkan benti mér á að fara í smáralind eða eithverja verslunarmiðstöðina og þar væri hægt að gera þetta.
Ég í sakleysi mínu fer inn í Kringlu og fer inn í eina gleraugnabúðina og spyr hvort að ég geti fengið sjónmælingu. Eldri kona sem að er að bjóða mér afgreiðslu verður frekar varnarleg og segir "vantar þér sjónmælingu fyrir ný gleraugu" Já segi ég og bæti við "ég er sko búin að panta umgjörðina" Þá breyttist viðmót konunnar mjög og hún segir með sínum RISASTÓRU framtönnum "já...." og verður svona "ég nenni ekki að afgreiða þig - leg" og segir höst "og hvar eru þau" Ég svara samviskusamlega og segi "Í sjónarhól í Hafnarfirði"... Þá segir hún aftur "já..." hálf móðguð og ég segi þá "Hva.. bjóðiði ekki upp á sjónmælingu fyrir þá sem að ætla ekki að kaupa gleraugu af ykkur?" og þá segir hún "jú, en ekki frítt".. ó... "En hvað kostar það" segi ég og svarið var einfallt "6000 kr" Já, nei takk!!!!
Og nú spyr ég??? Kostar í alvöru 6000 kr að fara í sjónmælingu.. síðast þegar ég braut gleraugun mín, fór ég með þau á selfoss í viðgerð og spyr um sjónmælingu strax. Það var ekkert mál og ekkert þurfti ég að borga og ég var ekki að kaupa af þeim ný gleraugu!!!
Þó svo að það séu fleiri gleraugnabúðir í kringluni þá fannst mér ég hafa opinberað það að ég væri úr sveitinni og þorði ekki fyrir mitt litla líf að fara inn í aðra gleraugnaverslun og biðja um sjónmælingu. Með skottið á milli lappana fór ég heim.
Já, Reykjavíkurferðirnar mínar eru yfirleitt alltaf skrautlegar..
Kveðja Kittý - sveitastúlka!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.2.2009 | 12:32
Styrktar reikningur...
Vildi bara benda fólki á styrktar reikning Arons Eðvars og fjölskyldu. Gunna og Bjössi standa sig eins og hetjur og Aron Eðvarð ekki síður. Stiðjum öll við bakið á þeim og leggjum eithvað til málana, margt smátt gerir eitt stórt :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.1.2009 | 10:08
Ég vona það líka...
... að það verði ekki skert fæðingarþjónusta á Selfossi.
Ég er fullviss um það að fæðingardeildin á selfossi er með þeim bestu á landinu, ég átti mitt barn þarna í apríl á síðasta ári og allt sem að kemur að fæðinguni og sængurleguni var frábært. Starfsfólkið yndislegt og allt eins heimilislegt og hægt er. Ég er ekki viss um að mér hefði liðið jafn vel í Reykjavík, þar sem að ég hefði ekki þekt eina einustu manneskju.
Einnig spyr ég.. hvað sparar ríkið á þessu? Ef að það á að skerða þessa þjónustu þá þíðir það meira álag á sjúkraflutningana. Er ekki bara verið að færa peningana úr öðrum vasanum í hinn?
Ég hef ekki lagt í vana minn að blogga um fréttir, en hér get ég ekki orða bundist því að þetta mál er mjög mikilvægt fyrir alla sunnlendinga.
Með kveðju
Kittý - móðir.
|
Áhyggjur af skertri fæðingarþjónstu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.1.2009 | 21:31
Tuðfærsla...
já.. nú kemur smá tuðfærsla.. þannig að ef að þú nennir ekki að hlusta á mig "tuða" þá geturu bara hætt núna ;)
En hélt að ég myndi tapa mér hérna í kvöld. Var að leggja Eyvind Sveinn inn í rúm og hann var að fara að sofa þegar unglingarnir "vinir" mínir byrjuðu að sprengja heimagerðar sprengjur hérna fyrir utan. Ekki eina, ekki tvær... Heldur hverja á fætur annari.. Ég hringdi niðrí Mæru til að tékka hvort að þau ætluðu ekkert að gera í þessu, þar sem að ég var ein heima með Eyvind Svein þá gat ég eginlea ekki farið út. Það hefði nú samt líklega verið áhrifamikið. En mér var svarað og viðkomandi sagði "þetta eru bara óvitar" og ætlaði augljóslega ekki að skamma þau neitt eða segja neitt við þau.. En common... sonur minn sem er 8 MÁNAÐA er óviti en ekki þessir krakkar.. Vá.. vildi ég óska að Marta hefði verið með Tíuna þarna núna.. SHITT!!! Hún hefði ekki þagað... En sem betur fer fór nágranni minn niður og sagði þeim að hætta þessu.. Og þau hlíddu í smá stund.. En byrjuðu svo aftur..
Jú ég sel þetta drasl, en ég sel það ekki í þeim tilgangi að rífa það í sundur og halda vöku fyrir 8. mánaða gömlu barni!!!!!
Úff... og já.. ég nenni ekki að lesa færsluna yfir.. þannig að þið sem að nenntuð að lesa tuðið þá er þetta kanski bara í belg og biðu og þið skiljið ekki neitt.. en það er svo sem allt í lagi því að ég fékk mína útrás.
Kv Kittý - mega pirraða!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.1.2009 | 13:51
Flugeldadrasl...
Fór í göngu í morgun, reyndar búin að fara út að labba 75% dagana af árinu ;) haha.. en já fór í göngu og bærinn okkar er ansi snyrtilegur þó svo að hann eigi til að vera haugaskítugur og ógeðslegur eftir áramótin, fólk hefur verið mjög duglegt við að ganga frá flugeldaruslinu inn í garðana hjá sér. En það sem að kom mér kanski helst á óvart var hvað það hafa greinilega margir verslað flugeldana af öðrum en Landsbjörgu eða bara okkur í Hjálparsveitini í Hveragerði. Finnst það mjög athyglisvert þar sem að við erum nú einu söluaðilarnir í Hveragerði og fólk þarf þá að versla þetta í Reykjavík. En þetta er val þeirra, en ég hvet alla þá sem að versluðu ekki við Hjálparsveit skáta Hveragerði fyrir áramótin að versla við okkur fyrir þrettándan.. Nóg er til að tertum ennþá og verður opið í dag til 21 og á morgun til 22.
Annars er jólahátíðin búin að vera rosalega góð, vorum hér heima bæði um jól og áramót og nutum þess í botn. Sonurinn svaf sprengjurnar allar af sér og tíkin var bara þokkalega róleg..
Ég renndi svo upp á Akranes í gær þar sem að Lalli var að vinna og ég var með bílinn. Ég bauð Pálu fræknu að koma með mér og hittum við bara næstum því alla á Skaganum. Yndislegt að kíkja uppeftir og sýna sig og sjá aðra.
Jæja.. Sonurinn kallar..
Kv. Kittý - jólaálfur...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.12.2008 | 21:43
Nú árið er liðið....
.... eða allveg að verða það...
Árið 2008 hefur verið ansi afdrifaríkt í mínu lífi. Hér kemur smá annáll...
Janúar: Var orðið þokkalega ólétt, stundaði sundlaugarnar á fullu og naut þess í botn, þangað til að ég kom úr sundi eitt skiptið og þá hafði verið keyrt á bílinn okkar og stungið af. Höfum enn ekki fengið staðfestingu á því hver þetta hafi verið en höfum sterkan grun. Lá svo fárveik í lok janúar með háan hita og ógeðslega pest sem að hefur líklega skilað sér til sonarins því að hann er stálhraustur :)
Febrúar var svo rólegur, ég var búin með skólan og var bara að vinna við að skúra og aðra hverja viku á kvöldvöktum á elló. Þess á milli las ég jólabækurnar sem að allir hinir fengu í jólgjafir og dreymdi.. bloggið mitt einkennist af draumafærslum í febrúar eins og t.d þessu : "En þegar heim var komið var allt annað barn með okkur, þá var það drengur og hann var DVERGUR!!! og ekki nóg með það heldur áttum við tvíbura fyrir tvö stráka sem að voru líka DVERGAR!!! En núna þótti mér allveg svakalega vænt um barnið þó svo að höfuðið á því væri allt of stórt miðað við búkinn og hafði mestar áhyggjur af því að honum tækist að festa hausinn á milli rimlana í rúmminu..."
Í byrjun mars fórum við skötuhjú í bústað upp í munaðarnesi og héldum óvænt upp á afmælið hans Lalla, buðum fullt af góðu fólki í mat og drykk og áttum mjög skemtilega kvöldstund með þeim. Rúntuðum allveg heilmikið um allt svæðið, fórum allveg upp í Húsafell og allt. Sáum meira að segja beljur í snjónum og veltum því fyrir okkur hvort að ísinn væri búin svoleiðis til ;) Í lok mars tókst mér svo að lenda í findnustu uppákomu í heiminum í sturtuklefanum og það er yndislegt að lesa þetta yfir: http://kittysveins.blog.is/blog/kittysveins/entry/488147/
Apríl var svo stærsti og merkilegasti mánuður í lífi mínu, hann var reyndar ENDALAUST lengi að líða.. Heilmiklar framkvæmdir voru á baðherberginu og ég hætti að vinna á elló. Hafði hætt í febrúar á leikskólanum. Ég stitti mér stundir með göngutúrum, sundferðum og bókalestri á meðan pabbi og Lalli unnu hörðum höndum í baðinu. Tvem dögum áður en sonurinn kom í heimin sat ég yfir sjónvarpinu og horfði á mótmælin við rauðavatn og skemti mér konunglega. Að kvöldi 24. fór ég svo í saumó til Maríu Rúnar og um nóttina byrjaði ballið. Yndislegasta mannvera á hnettinum potaði sér í heiminn klukkan 16:43 25 apríl og öll biðin var þess virði. Síðustu dagar mánaðarins fóru svo í að stara á drengin og kynnast þessi ákveðna barni sem að kom með okkur heim 30. apríl.
Maí: einkendist af gestagangi, brjóstagjöf, vökunóttum og aðdáun. En mánuðurinn endaði með trompi þar sem að suðurlandsskálftinn kom og sem betur fer var ég úti að labba með fimm vikna gamlan snáðan. Ég átti líka afmæli, en það var ansi rólegt vegna þess að það var lítið gull sem að stal allri athyglinni :)
Júní: Í júní nutum við þess að labba um í góða veðrinu. Í lok júní fórum við svo á Bíldudal, vorum þar í 4 daga og nutum veðurblíðunar á veztfjörðum. Keyrðum á Látrabjarg og fleiri staði þar í kring.
Júlí: Við fórum í bústaðinn hennar Heiðu frænku í byrjun mánaðarins og ég hætti með Eyvind Svein á brjósti í byrjun júlí, þar sem að brjóstagjöfin gekk aldrei nógu vel. Enn var gott veður og við nutum veðurblíðunar í botn. Fórum í sund með stubbinn í fyrsta skipti og hann elskar að vera í vatni. Fórum á Akureyri í eina viku þar sem að við kíktum á skátamót og höfðum það rosa notalegt, keyrðum svo heim að nóttu til vegna þess að heitasti dagur sumarsins var daginn eftir og við nenntum sko ekki að sitja í bíl allan tíman.
Ágúst: Var rólegur, en við skírðum Eyvind Svein í lok ágúst þar sem að skírnin hafði fallið niður vegna jarðskjálftans. Skírnardagurinn var yndislegur, skírðum klukkan 11 um morguninn og vorum komin heim fyrir fjögur. Æðislegur dagur í alla staði.
Í byrjun september lá ég með pest og viðbjóð í nokkra daga og gat ekki einu sinni sint syninum. Hef sjaldan orðið svona svakalega veik. Hiti, hor og hálsbólga herjuðu á okkur foreldrana en ekki hafði það nein áhrif á soninn.
Október: var að öllu leiti rólegur.
Nóvember: var enn rólegri. Lalli var á námskeiði og því ekkert heima í október og helmingin af Nóvember og því skottuðumst við mæðgin bara hér heima í rólegheitum. Fórum í sund á heilsuhælinu 1-2 í viku og út að labba þegar það viðraði vel.
Desember: var svo frábær, jólaundirbúningurinn gekk rosa vel og við eiddum jólunum saman hérna heima ásamt Mömmu minni. Maturinn hepnaðist meira að segja eins og í sögu þó svo að ég hafi aldrei eldað pörusteik áður.
Já ég er sko búin að eiga gott ár, gæti varla haft það betra og vonandi verður næsta ár enn betra. En því má ekki gleyma að árið hefur líka verið litríkt í þjóðfélaginu, það var skipt um borgarstjórn nokkrum sinnum, það gengu ísbirnir á land, bankarnir féllu og það kom kreppa, Rúnar Júl féll frá, það kom jarðskjálfti, vörubílstjórar mótmæltu og ég veit ekki hvað og hvað... Það má allavega segja að Eyvindur Sveinn hafi fæðst á stórmerkilegu ári.
En ég þakka lesninguna og óska ykkur gleðilegs nýs árs og ég vona innilega að það verði jafn gott og árið sem að er að líða.
Áramótakveðja
Kittý og co!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.12.2008 | 20:19
Allt er þegar þrent er...
já.. suma daga á maður bara að liggja upp í rúmi og gera ekki neitt...
Ég byrjaði daginn í dag á því að missa skál í gólfið og hún smallaðist, jæja... það var moppað, ryksugað og moppað aftur svona til að vera viss um að sonurinn og hundurinn myndu ekki ná sér í glerbrot.
Jæja, um miðjan dag tókst mér svo að rekast í disk og brjóta hann. Hef ekki brotið einn einasta hlut í marga marga mánuði og svo TVEIR hlutir sama daginn. En brotið á disknum var frekar hreint, hann fór bara í tvent, en samt sem áður var ryksugað yfir svona til öryggis.
En óhappa dagurinn minn er ekki búinn því að þegar ég var að afþýða epla, peru og gulrauta mauk fyrir soninn í kvöldmat þá sprakk skálinn í örbylgju ofninum..
Já allt er þegar þrent er og vonandi brýt ég ekki meira í kvöld.
Annars gengur jólaundirbúningurinn mjög vel. Allt að verða klárt, á eginlega bara eftir að kaupa matinn og elda hann. og jú kanski ryksuga og skúra yfir einu sinni enn ;) heheheh!!!
Eigiði góða jólahátíð..
kv Kittý - brothætta!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)



Hulda Bergrós Stefánsdóttir
Matthias Freyr Matthiasson
Inga Dagný Eydal
Yousef Ingi Tamimi
Egill Bjarnason
Á móti sól
Birna Dís Benjamínsdóttir
Hommalega Kvennagullið
Jón Svavarsson
Ingunn Valgerður Henriksen
Varmárhvammur
Hafdís Ragna Rúnarsdóttir
Agnarsbók
8 hjúkrunarfræðinemar
Sigrún Þöll
Helguráð
Ebba Lóa Ásgeirsdóttir
Ragnhildur Þórðardóttir









